Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 25 mínúturnar fyri Barcelona þegar liðið beið lægri hlut fyrir pólska liðinu Wisla, 1:0, í síðari viðureign liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar. Tapið kom ekki að sök fyrir Börsunga því þeir unnu fyrri leikinn, 4:1, og hafa tryggt sér sæti í riðlakeppninni.