Rússneski landsliðsmaðurinn Roman Pavlyuchenko segist vera á leið til Tottenham en fregnir bárust af því í kvöld að Tottenham hafi loks náð samkomulagi við Spartak Moskvu um kaupverðið á framherjanum sem hefur verið orðaður við Tottenham í allt sumar.
Pavlyuchenko staðfesti í samtali við rússneska netmiðil í kvöld að hann hefði ekki farið með liði Spartak til Kænugarðs í Úkraínu en Spartak mætir Dynamo Kiev í Meistaradeildinni annað kvöld. Í staðinn hefði hann verið að ganga frá málum við Tottenham.