Kaká vill ekkert fara

Kaka hefur engan áhuga á því að yfirgefa AC Milan.
Kaka hefur engan áhuga á því að yfirgefa AC Milan. Reuters

Þrátt fyrir sögur af því að knattspyrnuliðið Chelsea sé að undirbúa himinhátt tilboð í brasilíska leikstjórnandann Kaká hjá AC Milan, upp á rúmlega 9,7 milljarða íslenskra króna hefur leikmaðurinn sjálfur sagt að hann hafi engann áhuga á því að yfirgefa Mílanó liðið.

„Ég hef alltaf sagt að ég sé ánægður hjá AC Milan og svo lengi sem ég keppi að því sama og liðið mun ég vera í herbúðum Milan. Ég fer ekki fet. Svona hefur þetta alltaf verið. Minn metnaður er að vinna titla og sá metnaður er einnig ríkjandi hjá AC Milan,“ sagði Kaká.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert