Harry Redknapp stjóri Portsmouth er lunkinn þegar kemur að leikmannakaupum. Nú íhugar hann að fá Freddie Ljungberg til liðsins sér að kostnaðarlausu.
Það vakti athygli margra að Ljungberg var leystur frá samningi sínum við West Ham fyrir leiktíðina því hann er í versta falli vel nothæfur varamaður að mati flestra sparkspekinga.
Það veit Harry Redknapp manna best og breska blaðið Mirror telur sig hafa heimildir fyrir að svo geti farið að Ljungberg klæðist peysu Portsmouth áður en langt um líður enda kostar Svíinn ekki krónu.