Riera á leið til Liverpool

Riera klæðist búningi Liverpool samkvæmt Daily Mail.
Riera klæðist búningi Liverpool samkvæmt Daily Mail. Reuters

Breska blaðið Daily Mail segir að næsta frágengið sé að vængmaðurinn Albert Riera frá Espanyol gangi til liðs við Liverpool fyrir 1.5 milljarð. Það þýðir að dyrunum verður lokað á Gareth Barry.

Fréttirnar eru enn eitt reiðarslagið fyrir Everton sem reynt hefur mikið að klófesta Riera en sá hefur á tiltölulega skömmum tíma risið upp sem einn hæfileikaríkasti leikmaðurinn á Spáni.

Sé þetta rétt mun Liverpool ekki lengur freista þess að kaupa Gareth Barry frá Aston Villa sem væntanlega gleður stuðningsmenn þess félags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert