Tottenham náði loks í dag samkomulagi við Spartak Moskvu um kaup á rússneska landsliðsmanninum Roman Pavlyuchenko. Talið er að kaupverðið sé um 14 milljónir punda sem jafngildir um 2,2 milljörðum íslenskra króna.
Allt gerðist þetta svo fljótt svo ég gat ekki einu sinni kvatt samherja mína. Það eina sem stöðvaði mig frá því að fara var fjölskyldan en nú eru engar efasemdir lengur og ég hef ákveðið að gera samning við Tottenham,“ sagði Pavlyuchenko.