Tottenham hefur náð samkomulagi við Manchester City um kaup á króatíska landsliðsmanninum Vedran Corluka. Hann hefur verið á mála hjá City í eitt ár en Corluka er 22 ára gamall sem á baki 24 leiki með Króötum.
,,Ég er mjög ánægður að vera kominn til Tottenham sem er stórt og öflugt félag og hefur marga frábæra leikmenn í sínum röðum. Þá skemmir ekki fyrir að minn besti vinur, Luka Modric, er í liðinu,“ segir Corluka á vef Tottenham.