Íslendingafélagið West Ham seldi í dag norður-írska varnarmanninn George McCartney til Sunderland og hann samdi þar til fimm ára. Aðeins er liðinn mánuður síðan West Ham hafnaði tilboði Sunderland í hann og gerði við hann fimm ára samning.
McCartney, sem er 27 ára, fer á kunnuglegar slóðir því hann lék áður með Sunderland en West Ham keypti hann þaðan fyrir tveimur árum á eina milljón punda. Sunderland greiðir hinsvegar 6 milljónir punda fyrir að fá kappann aftur og þetta verða því að teljast góð viðskipti hjá Björgólfi Guðmundssyni og hans mönnum.