Keegan hættur hjá Newcastle?

Kevin Keegan er sagður hættur með Newcastle.
Kevin Keegan er sagður hættur með Newcastle. Reuters

Fréttastofa Sky greindi frá því rétt í þessu að samkvæmt sínum heimildum væri Kevin Keegan hættur sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle United.

Áður hefur komið fram að Keegan hafi setið á fundi með stjórnarmönnum Newcastle í allan morgun í stað þess að stjórna æfingu liðsins, en hann sé afar ósáttur við stefnu stjórnarinnar í leikmannamálum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert