Ferdinand ekki með gegn Andorra

Ferdinand hefur lítið getað æft með enska liðinu síðustu daga …
Ferdinand hefur lítið getað æft með enska liðinu síðustu daga en heldur hér bolta á lofti ásamt félögum sínum. Reuters

Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, mun ekki geta leikið með Englandi gegn Andorra í fyrsta leik liðsins í undanriðli HM. Ferdinand glímir við meiðsli á hálsi en talið er líklegt að hann verði klár í slaginn þegar enska landsliðið fer til Króatíu á miðvikudaginn.

Fabio Capello mun því þurfa að velja á milli Wes Brown, Joleon Lescott og Matthew Upson til að fylla miðvarðastöðuna við hlið John Terry.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert