Ítalinn Gianfranco Zola er nú ásamt Roberto Donadoni sá er líklegastur þykir til að taka við liði West Ham.
Hefur veðmálum á Zola fjölgað mikið undanfarin sólarhring sem getur verið merki um að einhverjir lumi á innherjaupplýsingum. Þótti Zola ekki ýkja líklegur fyrir helgina en það hefur breyst fljótt.
Þá er Slaven Bilic enn í myndinni en hann hefur lítinn tíma til að velta málinu fyrir sér. Hann er önnum kafinn að undirbúa landslið Króatíu fyrir landsleikinn gegn Englandi nú á miðvikudaginn.