Gerrard ekki með á móti United

Steven Gerrard
Steven Gerrard Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verður fjarri góðu gamni á laugardaginn þegar Liverpool mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Gerrard hefur átt í nárameiðslum í haust en látið sig hafa það að spila. Hann gekkst hins vegar undir aðgerð og varð því að draga sig út úr enska landsliðshópnum.

„Ég á fína möguleika á að vera klár í leikinn við Marseille í Meistaradeildinni í næstu viku, en ég næ ekki leiknum við United. Ég vil ekki fara í svona stórleik eftir að hafa kannski bara náð einni æfingu, segir Gerrard.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert