Hyypia ekki í Meistaradeildarhópnum

Hefur Sami Hyypia leikið sinn síðasta Meistaradeildarleik fyrir Liverpool?
Hefur Sami Hyypia leikið sinn síðasta Meistaradeildarleik fyrir Liverpool? Reuters

Varnarjaxl Liverpool, Sami Hyypia, er óánægður með þá ákvörðun Rafa Benítez þjálfara að velja hann ekki í 25 manna hóp liðsins í Meistaradeild Evrópu.

Reglur kveða á um að í 25 manna hópum liða sem þátt taka í Meistaradeildinni séu minnst átta uppaldir hjá viðkomandi félagsliði. Þess vegna eru á blaði hjá Liverpool menn á borð við Jay Spearing og Martin Kelly en enginn Sami Hyypia.

Hægt er að breyta listanum áður en útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar hefst ef félög ná svo langt en þangað til að minnsta kosti situr Hyypia heima meðan Liverpool spilar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert