Zola gerir þriggja ára samning við West Ham

Gianfranco Zola verður knattspyrnustjóri West Ham.
Gianfranco Zola verður knattspyrnustjóri West Ham. Reuters

Gianfranco Zola hefur samþykkt að gera þriggja ára samning við West Ham um að taka við knattspyrnustjórastarfi hjá félaginu. Zola kemur til London á morgun og mun skrifa undir samning við Íslendingaliðið.

Zola verður svo kynntur til sögunnar á fréttamannafundi á föstudaginn en hann tekur við starfi Alan Curbishley sem ákvað að hætta störfum á dögunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert