Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United reiknar með að Búlgarinn Dimitar Berbatov leiki sinn fyrsta leik með félaginu á laugardaginn en þá fer fram einn af stórleikjum tímabilsins þegar Liverpool tekur á móti Englandsmeisturunum.
Berbatov lék með Búlgörum gegn Svarfellinginum í undankeppni HM um síðustu helgi en hefur í vikunni æft með United-liðinu og vonast til að verða valinn í liðið sem etur kappi við Liverpool.
Við þurfum að sjá í hvaða ástandi menn eru eftir landsleikjatörnina en ég reikna með ekki með öðru en að Berbatov komi við sögu í leiknum,“ sagði Ferguson við Sky sjónvarpsstöðina.