Kevin Keegan er nú sagður líklegur að taka við knattspyrnustjórastarfinu hjá Newcastle á nýjan leik. Breskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Keegan hafi hitt Mike Ashley eiganda Newcastle á fundi í kvöld og það þykir renna stoðum undir að Keegan snúi til baka en átta dagar eru liðnir síðan hann sagði skilið við félagið.
Sumir veðbankar á Englandi hafa lokað fyrir veðmál um hver taki við stjórastarfinu hjá Newcastle en sem kunnugt er ákvað Keegan að hætta þar sem hann var ósáttur við afskipti stjórnarmanna félagsins af leikmannamálum.