Chelsea lagði Manchester City - Terry með rautt spjald

Robinho í baráttu við Florent Malouda á Manchester Stadium í …
Robinho í baráttu við Florent Malouda á Manchester Stadium í dag. Reuters

Chelsea var að leggja Manchester City að velli, 3;1, en liðin áttust við á Manchester Stadium nú síðdegis. Robinho kom City yfir í sínum fyrsta leik með liðinu með marki beint úr aukaspyrnu en Ricardo Carvahlo, Frank Lamard og Nicolas Anelka svöruðu fyrir Chelsea sem hefur 10 stig í efsta sæti ásamt Liverpool.

John Terry, fyrirliða Chelsea, var vikið af velli á 77. mínútu og verður hann í banni gegn Manchester United um næstu helgi.

Beina lýsingu frá leiknum má nálgast hér.

Robinho er í byrjunarliði Man City í dag.
Robinho er í byrjunarliði Man City í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka