Norski framherjinn John Carew leikur ekki með Aston Villa annað kvöld þegar liðið mætir búlgarska liðinu Litex Lovech í 1. umferð UEFA-bikarsins. Carew meiddist á ökkla í leiknum gegn Tottenham í fyrrakvöld og fór ekki með liðinu til Búlgaríu.
Óvissa ríkir um hvort hægt verði að spila en mikið vatnsveður hefur verið í Búlgaríu og völlur Litex Lovech er ekki í góðu ástandi.
Aston Villa tryggði sér sæti í 1. umferðinni með því að leggja FH-inga að velli, samanlagt, 5:2.