Svo virðist sem dregið hafi úr áhuga arabískra auðjöfra að kaupa lið Newcastle enda verðmiðinn hár. Hins vegar hefur hópur viðskiptamanna frá Nígeríu áhuga.
Mike Ashley eigandi leitar nú logandi ljósi að nýjum eigendum en þó ekki án þess að þéna sexfalt til baka það sem hann lagði út fyrir liðið fyrir ári síðan.
Það hefur stöðvað flesta sem áhugann hafa nema hóp nígerískra auðmanna sem eru samkvæmt fregnum enskra miðla komnir langleiðina að eignast félagið.