Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson eru báðir í byrjunarliði Reading sem mætir Stoke á útivelli í 3. umferð ensku deildabikarkepnninar í kvöld. Þá er hinn 19 ára gamli Gylfi Þór Sigurðsson á varamannabekk liðsins.
Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Burnley sem sækir úrvalsdeildarlið Fulham heim en Jóhannes kom af varamannabekknum um síðustu helgi og skoraði í jafnteflisleik liðsins.