Styles bað Bolton afsökunar

Liðsmenn Bolton mótmæla vítaspyrnudómi Styles á Old Trafford.
Liðsmenn Bolton mótmæla vítaspyrnudómi Styles á Old Trafford. Reuters

Dómarinn Rob Styles bað í dag Bolton afsökunar fyrir að dæma vítaspyrnu á liðið í leiknum við Manchester United í fyrradag. Styles taldi að Jlloyd Samuel hefði brotið á Cristiano Ronaldo í vítateignum og benti umsvifalaust á vítapunktinn og Ronaldo skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni.

Greinilegt er að eftir að skoðað atvikið af myndbandi gerði Styles mistök og það kom leikmönnum Manchester United, ekki síst Ronaldo, mjög á óvart þegar Styles dæmdi vítið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert