Markvörður Sunderland, hinn frábæri Craig Gordon, óttast mjög lið Arsenal eftir 4:0 stórsigur þess síðarnefnda á Porto í Meistaradeildinni. Sunderland tekur á móti Arsenal um helgina.
Óttast Gordon að spark það sem Arsene Wenger gaf leikmönnum sínum eftir tapleikinn gegn Hull um síðustu helgi hafi verið það áhrifaríkt að Sunderland megi eiga von á sams konar örlögum og lið Porto enda sé fráleitt að halda að Arsenal láti slík úrslit og gegn Hull endurtaka sig þessa leiktíðina.