Tottenham í riðlakeppni UEFA-bikarsins

Leikmenn Tottenham fagna marki sínu í Póllandi í dag.
Leikmenn Tottenham fagna marki sínu í Póllandi í dag. Reuters

Tottenham var að tryggja sér sæti í riðlakeppni UEFA-bikarsins með því að gera 1:1 jafntefli við pólska liðið Wisla Kraká en liðin áttust við í síðari viðeigninni í 1. umferð keppninnar. Tottenham hafði betur í fyrri leiknum, 2:1, og vann því samanlagt, 3:2.

Tottenham komst yfir með sjálfsmarki á 58. mínútu en varnarmaður Wisla varð fyrir því óláni að skora í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Gareth Bale. Heimamenn jöfnuðu metin sjö mínútum fyrir leikslok en þrátt fyrir nokkra pressu á mark Tottenham tókst þeim ekki að bæta öðru marki við og knýja fram framlengingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert