Englendingar hafa aldrei byrjað betur

Wayne Rooney fagna marki með félögum sínum í enska landsliðinu.
Wayne Rooney fagna marki með félögum sínum í enska landsliðinu. Reuters.

Wayne Rooney skoraði tvívegis í 3:1-sigri Englands gegn Hvít-Rússum á útivelli í undankeppni HM og hefur England aldrei áður unnið alla fjóra fyrstu leiki sína í þessari keppni áður. Fabio Capello þjálfari enska liðsins virðist ná vel til leikmanna sinna þrátt fyrir takmarkaða enskukunnáttu en Steven Gerrard skoraði fyrsta mark leiksins með þrumufleyg af löngu færi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert