Sex af átta Íslendingum sem leika með liðum í ensku knattspyrnunni eru í byrjunarliðum sinna liða í dag, í leikjum sem hófst klukkan 14.00. Þar á meðal er Brynjar Björn Gunnarsson sem hristi af sér meiðslin úr landsleiknum og byrjar inná hjá Reading gegn Preston í 1. deild.
Ívar Ingimarsson er líka í liði Reading í leiknum í dag.
Grétar Rafn Steinsson er í liði Bolton sem tekur á móti Blackburn í úrvalsdeildinni en Heiðar Helguson er meiddur.
Hermann Hreiðarsson er varamaður hjá Portsmouth sem sækir Aston Villa heim í úrvalsdeildinni.
Jóhannes Karl Guðjónsson er í liði Burnley sem tekur á móti Birmingham í 1. deild.
Aron Einar Gunnarsson er í liði Coventry sem mætir Wolves á útivelli í 1. deild.
Gylfi Þór Sigurðsson er í liði Shrewsbury sem tekur á móti Bournemouth í 3. deild en Gylfi var lánaður til Shrewsbury frá Reading á dögunum.