Benítez: Torres á að fá Gullknöttinn

Fernando Torres er klárlega einn sem möguleika á að vinna …
Fernando Torres er klárlega einn sem möguleika á að vinna til Gullknattarins í desember. Reuters

Rafa Benítez telur ljóst að Fernando Torres eigi manna mest skilið að vinna hinn eftirsótta Gullknött.

Gullknötturinn er veittur þeim knattspyrnumanni er mest þykir hafa skarað framúr ár hvert og var tilkynnt um nöfn þeirra er til greina koma um síðustu helgi.

Eru þar nöfn á borð við Leo Messi, Wayne Rooney, Xavi, Cristiano Ronaldo, Kaka, Zlatan Ibrahimovic og David Villa en Benítez telur sinn mann eiga heiðurinn skilinn að þessu sinni. „Ég vel Fernando vegna þess að hann hefur átt stórkostlegt ár. Skorað yfir 30 mörk á sínu fyrsta tímabili í Englandi og gekk mjög vel í Evrópukeppninni með landsliði sínu. Hann á það skilið með fullri virðingu fyrir öllum hinum frábæru leikmönnunum sem tilnefndir eru.“

Tilkynnt verður um vinningshafann þann 2. desember. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert