Robbie Keane markaskorari Liverpool í leiknum við Atletico Madrid í kvöld sagði eftir leikinn á Vicente Calderon vellinum í Madrid í kvöld að hann væri ánægður með stigið.
,,Við réðum alveg ferðinni í fyrri hálfleik en í þeim seinni misstum við svolítið tökin og þetta var erfiðara hjá okkur. Eins og leikurinn þróaðist þá held ég að við getum við ánægðir með úrslitin og það verður gaman að kljást við þá á heimavelli okkar í næstu umferð,“ sagði Keane.