Stjórn Tottenham ákvað í kvöld að segja knattspyrnustjóranum Juande Ramos upp störfum ásamt framkvæmdastjóranum Damien Comolli. Gengi Tottenham hefur verið afleitt á tímabilinu en Lundúnaliðið situr á botni úrvalsdeildarinnar með aðeins 2 stig eftir átta leiki og í fyrrakvöld tapaði liðið fyrir Udinese í UEFA-bikarnum, 2:0.