Keane ákærður

Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland.
Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland. Reuters

Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland var í gær ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir óprúðmannlega framkomu gagnvart
dómaranum í viðureign Sunderland og Chelsea um síðustu helgi þar sem
Chelsea vann stórsigur, 5:0.

Keane helti úr skálum reiði sinnar yfir dómarann Martin Atkinson á leiðinni til búningsherbergja í leikhlé og var í kjölfarið sendur upp í áhorfendastúku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert