Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, vegna óásættanlegrar framkomu við Mike Dean dómara eftir leik United gegn Hull í úrvalsdeildinni síðasta laugardag.
United vann þar nauman sigur, 4:3, eftir að hafa komist í 4:1, og um leið og leiknum lauk skálmaði Ferguson inná völlinn og sagði Dean dómara til syndanna. Hann hefur fengið frest til 19. nóvember til að skýra mál sitt en má búast við sekt eða leikbanni.