Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Steven Gerrard, fyrirliði liðsins, þurfi að hvíla sig og vonast til að geta komið því þannig fyrir að hann geti hvílt hann eitthvað á næstu vikum.
Gerrard hefur leikið 19 leiki á þessari leiktíð. „Hann þarf að fá smá hvíld,“ segir stjórinn á heimasíðu félagsins og bætir við: „Það er alveg klárt að hann er dálítið þreyttur í augnablikinu.“