Frank Lampard miðjumaðurinn snjalli hjá Chelsea segir að þrátt fyrir tap Manchester United gegn Arsenal um nýliðna helgi þá líti hann enn á United sem keppinauta um Englandsmeistaratitilinn. Hann segist alls ekki vera búinn að afskrifa Englandsmeistarana.
United er átta stigum á eftir Chelsea og Liverpool en Chelsea er í toppsætinu með betri markatölu eftir 2:0 sigur á Blackburn í gær.
„United er alltaf harður keppinautur hvort það það er fimm eða átta stigum á eftir toppliðunum. Við höfum byrjað tímabilið vel ef þú missir einbeitingu þá geta komið nokkrir tapleikir í röð,“ segir Lampard.