Ungir leikmenn fá tækifæri hjá Capello

Capello gæti gefið ungu leikmönnunum séns á miðvikudaginn.
Capello gæti gefið ungu leikmönnunum séns á miðvikudaginn. Reuters

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er sagður freistast til þess að gera breytingar á liði sínu fyrir æfingaleikinn gegn Þýskalandi næstkomandi miðvikudag, í þágu yngri og óreyndari leikmanna.

Gabriel Agbonlahor hjá Aston Villa, Joe Hart hjá Manchester City og Tom Huddlestone  hjá Tottenham eru sagðir meðal þeirra sem munu fá tækifæri í byrjunarliðinu, en þeir hafa allir átt góða leiki undanfarið.

Síðast áttust liðin við árið 2001, í æfingaleik fyrir HM 2002, en þá fór England með sigur af hólmi, 5-1, á útivelli.

„Það verður erfitt að leika það eftir. Sá leikur var sannkallað ævintýri. En ef við höldum áfram að gera það sem við höfum gert undanfarið, þá verður þetta í lagi,“ sagði Rio Ferdinant.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert