Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verður ekki með enska landsliðinu gegn Þýskalandi í vináttuleik þjóðanna í Berlín á miðvikudag og missir einnig af næsta leik Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Gerrard, sem skoraði síðara markið í 2:0 sigrinum á Bolton í gær, varð fyrir meiðslum en staðfest var í dag að rifa hefði komið í vöðva í fæti. Talsmaður Liverpool staðfesti við BBC að fyrirliðinn yrði frá keppni í 7-10 daga af þessum sökum.
Liverpool fær Fulham í heimsókn næsta laugardag og fullvíst er talið að Gerrard missi af þeim leik. Spurningin er hvort hann verði búinn að ná sér fyrir viðureign Liverpool og Marseille í Meistaradeild Evrópu sem fram fer á Anfield 26. nóvember.