Heiðar Helguson verður í leikmannahópi QPR í fyrsta sinn á morgun þegar liðið sækir Crystal Palace heim í ensku 1. deildinni. Heiðar gekk í raðir QPR í vikunni en hann er í láni frá Bolton til áramóta og verður eftir það hugsanlega keyptur til Lundúnaliðsins.
Heiðar lék síðast í ensku 1. deildinni með liði Watford tímabilið 2004-05 og skoraði þá 16 mörk í 36 leikjum með liðinu í deildinni.
QPR er í 10. sæti deildarinnar með 28 stig en Crystal Palace er með tveimur stigum minna í 12. sæti.