Aston Villa vann Everton 3:2 í ensku deildinni í dag þar sem lokakaflinn var hreint ótrúlegur.
Aston Villa fékk óskabyrjun því Steve Sidwell kom liðinu yfir þegar aðeins 34 sekúndur voru liðnar, 0:1. Varnarmaðurinn Joleon Lescott jafnaði fyrir Everton á 30. mínútu, 1:1.
Ashley Young kom Villa yfir á ný á 54. mínútu, 1:2.
Staðan var lengi vel 2:1 fyrir Villa en á síðustu sekúndunum, eða svo héldu flestir, skoraði Joleon Lescott annað mark sitt fyrir Everton og jafnaði metin, 2:2. En leikmenn Everton voru enn að fagna þegar Ashley Young stakk sér framhjá Lescott og gerði sigurmarkið.