Hinn atvinnulausi Roy Keane, segist ætla að snúa aftur í enska boltann sem þjálfari, en hann sagði uppstörfum hjá Sunderland í síðustu viku, eftir 4:1 tap gegn Bolton.
„Ég hef lært og upplifað heilmikið á síðustu 27 mánuðum mínum og hef notið hörkunnar sem fylgir starfinu. Ég hlakka til að byggja á þeirri reynslu, einhverntímann í framtíðinni,“ sagði Keane í fréttatilkynningu frá sambandi þjálfara í ensku deildinni.