Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool teflir ekki fram sínu sterkasta liði gegn PSV Eindhoven í Meistaradeild Evrópu í kvöld en liðin mætast í Hollandi klukkan 19.45.
Liverpool og Atlético Madrid eru komin áfram úr riðlinum og aðeins spurning um hvort þeirra endi í efsta sætinu og fái þar með seinni leik 16-liða úrslitanna á sínum heimavelli.
Steven Gerrard fyrirliði, Xabi Alonso og José Reina markvörður sitja allir á varamannabekknum í kvöld en liðið er þannig skipað:
Cavalieri - Arbeloa, Carragher, Agger, Dossena - Babel, Mascherano, Lucas, Riera - Ngog, Keane.
Varamenn: Reina, Gerrard, Alonso, Benayoun, Spearing, Darby, Kelly.