Nýliðarnir í Hull City hyggjast bjóða Manchester United 8 milljónir punda í framherjann Fraizer Campbell. Leikmaðurinn, sem er 21 árs gamall, er í láni hjá Tottenham en hann lék sem lánsmaður með Hull á síðustu leiktíð og átti þar góðu gengi að fagna.
Campbell skoraði 15 mörk fyrir Hull á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að liðinu tókst að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor.