Juande Ramos fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, sem á dögunum tók við þjálfarastarfinu hjá Spánarmeisturum Real Madrid, er á höttunum eftir þremur leikmönnum Tottenham.
Að því er fram kemur í breska blaðinu Telegraph í dag vill Ramos fá Didier Zokora, Aaron Lennon og Roman Pavluchenko til liðs við sig og þá er hann einnig spenntur fyrir því að fá Ashley Young frá Aston Villa.
Ramos veitir ekki af liðsstyrk því mikil meiðsli hafa herjað á leikmannahóp Spánarmeistarana sem eftir tapið gegn Barcelona í gær eru 12 stigum á eftir erkifjendum sínum.