Wayne Rooney framherji Manchester United þarf ekki taka út refsingu fyrir viðskipti sín við danska leikmanninn Kasper Risgård í leik Manchester United og Álaborg í síðustu viku. Aganefnd UEFA ákvað að aðhafast ekkert í málinu en Rooney var sakaður um að hafa traðkað ofan á brjóskassa leikmannsins.
Dómarinn sá ekki atvikið en aganefnd UEFA ákvað að skoða málið en niðurstaðan úr þeirri skoðun var sú að Rooney var ekki beittur neinni refsingu.