Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem mætir Heerenveen frá Hollandi í riðlakeppni UEFA-bikarsins á heimavelli sínum, Fratton Parl. Hermann leikur í stöðu miðvarðar og er þetta í fyrsta sinn síðan í október sem hann fær tækifæri í byrjunarliði Portsmouth.
Arnór Smárason er á meðal varamanna hjá Heerenveen sem er án stiga en Portsmout hefur eitt stig.