Drátturinn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar hófst klukkan 11 að íslenskum tíma. Fjölmargir stórleikir eru framundan, hvar ensku liðin fengu verðug verkefni, en Manchester United og Liverpool fá ein enskra liða seinni leikinn á heimavelli.
José Mourinho hjá Inter Mílanó varð að ósk sinni, en hann vildi lenda móti ensku liði í 16-liða úrslitunum og fær ríkjandi Evrópumeistara Manchester United.
Claudio Ranieri hjá Juventus fær gömlu félaga sína úr Chelsea og Juande Ramos tekur á móti landa sínum Rafael Benitez þegar Real Madrid tekur á móti Liverpool.
Þá fær Arsenal lið Roma í heimsókn og Barcelona mætir Lyon í Frakklandi.
Eftirfarandi lið munu mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þann 24. og 25. febúar næstkomandi:
Chelsea - Juventus
Villareal - Panathinaikos
Sporting - Bayern Munchen
Atlético Madrid - Porto
Lyon - Barcelona
Real Madrid - Liverpool
Arsenal - Roma
Inter Milano - Manchester United