Heiðar Helguson er í liði vikunnar í ensku 1. deildarinnar hjá opinberri síðu deildakeppninar, The Football League, fyrir frammistöðu sína með QPR gegn Preston á laugardaginn.
QPR hafði betur í leiknum, 3:2, og skoraði Heiðar tvö fyrstu mörk Lundúnaliðsins og hefur þar með skorað 3 mörk í tveimur síðustu leikjum sínum með liðinu.
Heiðar er í láni hjá QPR frá Bolton til áramóta en líklegt er að forráðamenn QPR reyndi að kaupa Dalvíkinginn eftir það enda hafa þeir verið mjög ánægðir með framlag hans.