Hermann Hreiðarsson er aftur kominn út í kuldann hjá Portsmouth en Eyjamaðurinn er á meðal varamanna þegar liðið tekur á móti West Ham á Fratton Park klukkan 13. Hermann hefur verið í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum en Tony Adams stjóri Portsmouth ákvað að gera breytingar á liði sínu eftir tapið gegn Bolton um síðustu helgi.