Glen Johnson á leið til Liverpool?

Glen Johnson, leikmaður Portsmouth, er sagður á leiðinni til Liverpool.
Glen Johnson, leikmaður Portsmouth, er sagður á leiðinni til Liverpool. Reuters

Að sögn breskra vefmiðla hefur enski bakvörðurinn Glen Johnson þegar gert samning við Liverpool, sem greiðir Portsmouth 9 milljónir punda fyrir þjónustu hans.

Johnson var sagður meiddur fyrir leik Portsmouth gegn West Ham um jólin og því hafi hann ekki tekið þátt, en nú heyrast sögusagnir um að leikmaðurinn hafi þegar gert samning við Liverpool. Þá er hann sagður hafa verið í Liverpool á dögunum, að skoða þjálfunaraðstöðu liðsins í Melwood, sem eykur enn frekar á orðróminn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert