Mark Hughes knattspyrnustjóri Manchester City er á höttunum eftir Wayne Bridge vinstri bakverði í liði Chelsea að því er fram kemur á vef enska blaðsins Manchester Evening News.
Hughes er talinn þurfa að borga 8 milljónir punda fyrir Bridge sem hefur fengið fá tækifæri hjá Chelsea enda Ashley Cole fremri í goggunarröðinni hjá liðinu.