Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segist ekki vera undirbúa tilboð í markvörðinn Shay Given en því hefur verið haldið fram að Arsenal sé eitt þeirra liða sem eru á höttunum eftir Íranum. Given er ósáttur í herbúðum Newcastle og vill gjarnan reyna fyrir sér á öðrum vígstöðvum en hann hefur leikið með liðinu í 11 ár.
,,Við höfum ekki spurst neitt fyrir um Shay Given. Ég ber mikla virðingu fyrir honum sem leikmanni en við erum ekki á höttunum eftir markverði,“ sagði Wenger á vef Arsenal í dag.