Knattspyrnustjóri Middlesbrough, Gareth Southgate, segir að Stewart Downing, sem er eftirsóttur mjög af Tottenham, sé of góður fyrir lið af þeirri stærðargráðu.
Tottenham hefur ítrekað reynt að fá Downing til sín, en Southgate hefur jafnan svarað þeim fullum hálsi og meðal annars sagt að Middlesbrough sé ekki „útungunarstöð“ fyrir stærri lið í deildinni.
„Það væri ekki Downing í hag ef við tækjum tilboði Tottenham. Þetta er ekki góður tími fyrir hann að fara. Ef hann fer þarf hann að fara á annað stig í fótboltanum. Tottenham er frábært félag og ég vil ekki gera lítið úr þeim, en Downing er ekki til sölu. Við gætum hvort sem er ekki fengið neinn í staðinn á þessum tímapunkti,“ sagði Southgate.
Downing hefur sjálfur óskað eftir því að fá að fara til Tottenham, hvar einn af hans albestu vinum, Jonathan Woogate, elur manninn. Af því virðist þó ekki ætla að verða, ekki í janúarglugganum að minnsta kosti.