United endurheimtir Ferdinand og Evra

Rio Ferdinand og Cristiano Ronaldo, tveir af lykilmönnum Manchester United.
Rio Ferdinand og Cristiano Ronaldo, tveir af lykilmönnum Manchester United. Reuters

Rio Ferdinand varnarmaðurinn sterki hjá Manchester United er klár í slaginn og verður með United í stórleiknum á Old Trafford á sunndaginn þegar liðið tekur á móti Chelsea í einum af úrslitaleikjum ensku úrvalsdeildarinnar.

Ferdinand hefur verið frá vegna meiðsla í baki síðan um miðjan síðasta mánuð en hann æfði með Manchester-liðinu í gær og ef ekkert óvænt kemur uppá verður hann í hjarta varnarinnar ásamt Nemanja Vidic. Þá endurheimta ensku meistararnir franska bakvörðinn Patrice Evra sem hefur lokið við að afplána fjögurra leikja bann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert